Gjaldskrá Faxaflóahafna sf. – gildir frá 1. janúar 2013
Almenn ákvæði
1. gr.
Gjaldskrá þessi fyrir Faxaflóahafnir sf er sett skv. heimild í 20. grein hafnalaga nr. 61/2003 sbr. 19. grein sömu laga.
Um gjaldtöku tengda stærð skipa
2. gr.
Við ákvörðun gjalda, sem taka mið af stærð skipa, skal miðað við brúttótonnatölu skipa samkvæmt alþjóðlegu mælingarbréfi, sem gefið er út í samræmi við alþjóðasamþykktina um mælingu skipa frá 1969.
3. gr.
Af öllum skipum skal greiða tilheyrandi gjöld til hafnarsjóðs ef þau koma inn fyrir takmörk hafnanna og njóta þjónustu þeirra.
Skipagjöld
4. gr.
Lestargjöld:
Af öllum skipum skal greiða lestagjald, kr. 13,35 á mælieiningu skv. 2. gr. en þó ekki oftar en tvisvar í mánuði.
Bryggjugjöld:
Af öllum skipum sem leggjast við bryggju eða hafnarbakka skal greiða samkvæmt eftirfarandi:
Skip minni en 20.000 BT kr. 6,55 á mælieiningu fyrir hverja byrjaða 24 tíma, sem skip liggur bundið og skip stærri en 20.000 BT kr. 9,35 á mælieiningu fyrir hverja 24 tíma, sem skip liggur bundið.
Heimilt er að taka lesta- og bryggjugjald af fiskiskipum og minni bátum, sem mánaðargjald, kr. 87,50 á mælieiningu, en þó aldrei lægra en kr. 9.581 á mánuði. Bátar minni en 20 BT greiði þó aldrei lægra en kr. 5.630 á mánuði.
Heimilt er að leggja á allt að fimmföld bryggjugjöld á skip og báta sem liggja um lengri tíma við bryggju og hafa verið án haffærisskírteinis í a.m.k. 6 mánuði.
Heimilt er að leggja þreföld bryggjugjöld á skip og báta sem óska eftir langtíma viðlegu vegna annarrar starfsemi en útgerðar.
Gjald fyrir legu gestaskútu við flotbryggju skal vera kr. 11.000 eða 60 evrur á viku. Gjald fyrir einkalegu við flotbryggju skal vera kr. 11.520 á mánuði. Gjald fyrir heils árs einkalegu samkvæmt samningi skal vera kr. 117.500.
Vörugjöld
5. gr.
Vörugjald skal greiða af öllum vörum sem fluttar eru af skipsfjöl á land eða úr landi á skipsfjöl, eða úr einu skipi í annað, innan takmarka hafnanna, þó með þeim undantekningum er síðar getur. Farmflytjandi skal skila farmskrá og öðrum nauðsynlegum gögnum til Faxaflóahafna sf, vegna álagningar vörugjalda.
6. gr.
Fyrir vörur sem samkvæmt farmskrá skips eru ákveðnar til erlendra hafna, en eru látnar á land um stundarsakir, skal aðeins greitt vörugjald þegar vörurnar eru fluttar í land. Undanþegnar þessu gjaldi eru vörur sem látnar eru á land um stundarsakir vegna skemmda á skipi.
7. gr.
Þessar vörur eru undanþegnar vörugjaldi:
Umbúðir, svo sem tómir gámar, fiskkör, tankar o.fl., sem endursendar eru.
Olía, vistir og aðrar nauðsynjar skipa til eigin notkunar.
Almennar póstsendingar.
Úrgangur frá skipum sem fluttur er til eyðingar.
Vörugjald greiðist ekki af bifreiðum eða farangri ferðamanna, enda ferðast eigendur með sama skipi.
8. gr.
Vörugjald reiknast eftir þyngd eða verðmæti, með umbúðum og af hverri sendingu sérstaklega. Fara skal eftir farmskrá skipa við útreikning vörugjalds. Skipstjóri eða afgreiðslumaður skips skal láta Faxaflóahöfnum sf í té afrit af farmskrá. Sé engri farmskrá til að dreifa skal skipstjóri gefa drengskaparvottorð um vörumagn sem fermt hefur verið eða affermt úr skipi hans. Þyki hafnarstjóra ástæða til getur hann hvenær sem er látið ákveða vörumagnið á þann hátt sem hann telur hentugast. Reynist vörumagnið vera meira en upp er gefið greiðir farmeigandi kostnaðinn. Séu fleiri en ein vörutegund í sendingu ósundurliðað skal reikna vörugjaldið eftir þeirri tegund sem hæst gjald skal greiða af.
9. gr.
Vörur skal flokka til vörugjalds eftir því sem vörugjaldskrá tiltekur og gjaldið greiðist eins og þar segir:
Vörugjaldskrá:
1. fl.: Gjald kr. 274,90 fyrir hvert tonn:
Heilfarmar í lausu efni, sem losað er eða lestað með færiböndum, dælingu eða mokstursvélum svo sem kol, laust korn, salt, sandur, möl, kvarts, málmgrýti og önnur steinefni, vikur, kísilgúr, þörungamjöl, sement, áburður, súrál, koks, gifs, sementsgjall, og úrgangur, (brotajárn, pappír og fleira) sem fluttur er til endurvinnslu.
2. fl.: Gjald kr. 335,80 fyrir hvert tonn:
Heilfarmar af vökva sem dælt er í land eða um borð í skip svo sem bensín, brennsluolíur og lýsi. Heilfarmar af fiskimjöli.
3. fl.: Gjald kr. 573,10 fyrir hvert tonn:
Varningur, svo sem matvara, drykkjarvara, óunnir málmar og timbur, veiðarfæri, smurningsolíur, sjávarafurðir, landbúnaðarafurðir, hráefni til iðnaðar svo og þungavara til byggingaframkvæmda svo sem húshlutar, byggingaeiningar, rör, gifsplötur, rafmagnsstrengir, steypustyrktarjárn, stálbitar, málmklæðningar, einangrun.
4. fl. Gjald kr. 1.554,40 fyrir hvert tonn:
Aðrar vörur, sem ekki eru tilgreindar í 1. – 3. fl.
5. fl.: Aflagjald 1,27%.
Sjávarafli lagður á land eða í skip á hafnarsvæðinu til vinnslu eða brottflutnings, þ.m.t. fiskur og seiði úr eldiskvíum. Gjaldið reiknast af heildarverðmæti aflans.
Gjald af frystum afla frystitogara og eldisfiski reiknast af helmingi heildarverðmætis.
Gjald af saltfiski reiknast miðað við tvöfalda þyngd og gjald af gámafiski reiknast af áætluðu heildarverði.
Seljanda aflans ber að afhenda hafnarstjóra skýrslu um seldan afla um leið og sala hefur átt sér stað, t.d. afrit af aflaskýrslu til Fiskistofu. Aflagjaldið fellur í gjalddaga
um leið og afla er landað.
Seljandi ber skil á greiðslu aflagjalds.
Hámarksgjald samkvæmt lið þessum, eða þar sem verðmæti afla liggur ekki fyrir er 6.000 kr. fyrir hvert tonn,
Lágmarksgjald í vörugjaldaflokkum 3 og 4 er kr. 218,00.
Við sölu afla til skyldra aðila skv. 3. mgr. 9. gr. laga nr. 13/1998 um Verðlagsstofu skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna skal að lágmarki miðað við skiptaverð verðlagsstofu skiptaverðs.
Hafnsögugjöld
10. gr.
Íslensk skip yfir 60 metrar á lengd og öll erlend skip greiða hafnsögugjöld samkvæmt eftirfarandi gjaldskrá:
a) Fyrir leiðsögu til hafnar, að bólvirki eða lægi, kr. 3.298 fyrir hvert skip, auk kr. 5,00 fyrir hvert brúttótonn. Fyrir leiðsögu frá bólvirki eða lægi og úr höfn greiðist sama gjald.
b) Fyrir leiðsögu um höfn skal greiða hálft gjald samkvæmt lið a.
Ef skipstjóri skips hefur hafnsöguréttindi skv. ákvörðun hafnarstjórnar og hafnsögumaður fer ekki um borð, er veittur 25% afsláttur af hafnsögugjaldi.
Þjónusta dráttarbáta
11. gr.
Skipum yfir 15.000 BT, olíuskipum og skipum með hættulegan farm er skylt að hafa dráttarbát til aðstoðar eða öryggis.
Tímagjald fyrir aðstoð dráttarbátanna Magna, Jötuns og Leynis miðast við brúttóstærð skips, og er fyrir skip minni en 20.000 BT kr. 7,70 á BT og fyrir skip stærri en 20.000 BT kr. 9,60 á BT.
Fylgi dráttarbátur skipi til öryggis í eða úr höfn er tekið biðgjald. Tímagjald fyrir biðtíma dráttarbátanna Magna, Jötuns og Leynis miðast við brúttóstærð skips, og er fyrir skip minni en 20.000 BT kr. 3,90 á BT og fyrir skip stærri en 20.000 BT kr. 4,70 á BT.
Fast tímagjald fyrir siglingu og aðstoð dráttarbátsins Þjóts er kr. 40.200 á klukkustund.
Lágmarksgjald á klst. fyrir Magna og Jötunn er kr. 57.900, en Leyni 40.200 kr. Hámarksgjald á hvern bát á klst. kr. 287.000. Lágmarkstími er 1 klst.
Á siglingatíma Magna og Jötuns til eða frá stað umfram eina klukkustund greiðast kr. 57.900 á klst. Á samsvarandi siglingatíma Leynis greiðast kr. 40.200 á klst.
Fluttur hafnsögumaður: Fast gjald kr. 40.200
Aðrir flutningar: Lægsta tímagjald skv. gjaldskrá.
Þegar dráttarbátur flytur hafnsögumann og aðstoðar einnig skipið eða er til öryggis, fellur gjald fyrir flutning hafnsögumanns niður.
Önnur aðstoð er samkvæmt samningi hverju sinni.
Festargjöld
12. gr.
Festargjöld fyrir hverja afgreiðslu (1-2 menn) kr. 10.225. Séu fleiri en tveir menn notaðir við afgreiðslu er gjald fyrir hvern aukamann kr. 10.225
Vatns- og rafmagnssala
13. gr.
Vatnsgjöld:
Vatn afgreitt frá bryggju:
Kalt vatn kr./m3 291,50
Heitt vatn kr./m3 697,10
Lágmarksgjald miðast við 15 tonn.
Rafmagnssala:
Rafmagnsnotkun kr./kwst. 14,50.
Lágmarksgjald miðast við 300 kwst.
Sorphirðugjald
14. gr.
Sorphirðugjald pr. rúmmetra kr. 6.596. Lágmarks gjaldtaka er einn rúmmetri.
Vigtargjald
15. gr.
Almenn vigtun kr. 218,00 á tonn.
Lægsta gjald fyrir einstaka vigtun/löndun kr. 1.350,00
Skráningargjald á afla sem sjálfstæðir aðilar vigta kr. 2.408,00 á hverja löndun.
Þegar unnið er við vigtun um helgar og á milli kl. 21:00 og 07:00 virka daga greiðist að auki kr. 5.000,00 fyrir hverja byrjaða klukkustund.
Lóðagjöld og lóðaleiga
16. gr.
Almenn regla:
Lóðagjöld eru ákveðin af hafnarstjórn við úthlutun hverrar lóðar.
Lóðaleiga skal vera 2,35% af lóðarmati hverrar lóðar.
Lóðaleiga af farmstöðvum 5 hektara og stærri skal vera 2,00% af lóðamati.
Geymslusvæði:
Öll svæði 107,30 kr./m² á mánuði
Siglingavernd
17. gr.
Við komu skipa, sem falla undir ákvæði laga um siglingavernd nr. 50/2004, ber að greiða eftirtalin gjöld til Faxaflóahafna sf:
Farþegaskip:
Farþegavernd 1,50 evra - pr. farþega.
Skipavernd kr. 40.134 á hverja komu.
Gjaldið miðast við einn öryggisvörð.
Farmskip:
Skipavernd kr. 40.134 á hverja komu.
Farmvernd 20,0% álag á vörugjöld.
Fyrir umbeðna vaktþjónustu við öll skip skal greiða kr. 5.670, á klst., eða samkvæmt reikningi frá utanaðkomandi þjónustufyrirtæki með 10% álagi.
Um innheimtu og greiðslu gjalda
18. gr.
Séu gjöldin ekki greidd á réttum gjalddögum er áskilið að reikna dráttarvexti af gjaldfallinni fjárhæð skv. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001.
19. gr.
Skipstjóri, eigandi, umboðsmaður og umráðamaður skips bera ábyrgð á greiðslu gjalda þeirra sem greiða ber til Faxaflóahafna sf vegna skipsins. Er skipstjóra skylt við komu til hafnar að gefa hafnarstjóra upplýsingar um skipið í samræmi við ákvæði 5. mgr. 33. gr. reglugerðar nr.326/2004 um hafnamál og afhenda hafnarstjóra þjóðernis- og skrásetningarskírteini skipsins, ef hafnarstjóri krefst þess, vegna ófullnægjandi upplýsinga frá skipstjóra og hefur hafnarsjóður haldsrétt yfir skírteinum uns gjöld eru greidd. Töf og tjón sem af þessu hlýst er einvörðungu á ábyrgð og kostnað greiðanda áfallinna gjalda.
Áfallin gjöld skal greiða áður en skip fer burt úr höfn og enginn skipstjóri getur vænst þess að fá afgreiðslu fyrir skip sitt hjá sýslumanni eða tollstjóra, nema að hann sanni með vottorði frá hafnarstjóra að hann hafi greitt öll gjöld sín til hafnarinnar.
20. gr.
Vörugjald greiðist af öllum vörum sem eru affermdar, afhentar eða fluttar, eða á annan hátt sjóleiðis eða landleiðina, inn fyrir mörk hafnanna. Vörugjaldið reiknast skipi til skuldar áður en skip hefur siglingu, nema annað sé sérstaklega um samið. Vörugjald er á ábyrgð farmflytjanda og er afhending vöru án greiðslu vörugjalds á hans ábyrgð.
Ef vörur eru fluttar úr einu skipi í annað greiðir sá vörugjaldið sem affermir.
Vörugjald af vörum sem koma til hafnarinnar fellur í gjalddaga þegar skipið sem vörurnar flytur er komið í höfnina og vörugjald af vörum sem fluttar eru úr höfninni fellur í gjalddaga þegar vörurnar eru komnar í skip. Skipstjóra og afgreiðslumanni skips er óheimilt að afhenda vörurnar fyrr en gjaldið er greitt.
21. gr.
Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má ávallt tryggja með aðför að undangengnum dómi.
Skipagjöld eru tryggð með lögveði í viðkomandi skipi eða vátryggingarfé. Gengur það veð í tvö ár fyrir samningsveðkröfum sbr. ákvæði 2. mgr. 21. gr. hafnalaga nr. 61/2003. Faxaflóahöfnum er heimilt að krefjast frekari trygginga fyrir greiðslu áfallinna gjalda ef ástæða þykir til.
22. gr.
Öll gjöld í gjaldskrá þessari eru án virðisaukaskatts. Faxaflóahöfnum sf er skylt að innheimta virðisaukaskatt af öllum gjöldum í gjaldskrá þessari, sbr. 3. tl. 3. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt.
Gildistaka.
23. gr.
Gjaldskrá þessi fyrir Faxaflóahafnir sf er samþykkt af hafnarstjórn þann, skv. hafnalögum nr. 61/2003 og 37. gr. reglugerðar um hafnamál nr. 326/2004.
Gjaldskráin öðlast gildi þann 1. janúar 2013 og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.
Reykjavík, 14. september 2012.
Gísli Gíslason