Tól



Veður

Gamla höfnin | Kleppsbakki | Akranes | Grundartangi

Hitastig
Vindur
Hviða
Sjávarhæð
Loftvog
Nánar
20.05 05:30





Fundir 2011

92. fundur

Ár 2011, föstudaginn 11. nóvember kom stjórn Faxaflóahafna sf. saman til fundar í fundarherbergi hafnarstjórnar í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu og hófst fundurinn kl. 09:00.

 
Mættir:
Hjálmar Sveinsson
Páll H. Hjaltason
Björk Vilhelmsdóttir
Júlíus Vífill Ingvarsson
Garðar G. Norðdahl
Sigurður Sverrir Jónsson
Páll S. Brynjarsson
 
Varafulltrúi:
Gísli Marteinn Baldursson.
 
Áheyrnarfulltrúar:
Gunnar Sigurðsson
Karl Lárus Hjaltested
 
 
Auk þess sátu fundinn: Vignir Albertsson, skipulagsfulltrúi, Jón Þorvaldsson, aðstoðarhafnarstjóri, Guðmundur Eiríksson, forstöðumaður tæknideildar og Gísli Gíslason, hafnarstjóri, sem jafnframt ritar fundargerð.
 
1.    Tilnefning Reykjavíkurborgar um Gísla Martein Baldursson sem varafulltrúa í stjórn í stað Þorbjargar Helgu Vigfúsdóttur.
Lagt fram.
 
2.    Rekstraryfirlit m.v. janúar – september 2011.
Hafnarstjóri gerði grein fyrir helstu niðurstöðum yfirlitsins. Lagt fram.
 
3.     Erindi borgarstjórans í Reykjavík dags. 15.9.2011 þar sem óskað er umsagnar um tillögu varðandi áhrif á fyrirhugaðri breytingu á lögum um stjórn fiskveiða á atvinnulíf í Reykjavík. Drög hafnarstjóra að umsögn dags. 10.10.2011.
Stjórn Faxaflóahafna samþykkir tillögu að umsögn og felur hafnarstjóra að senda hana borgarstjóranum í Reykjavík.
 
4.    Minnisblað og samantekt aðstoðarhafnarstjóra dags. 17.10.2011 um dýpkun Gömlu hafnarinnar og Sundahafnar á undanförnum áratugum.
Lagt fram.
 
5.    Bréf stjórnar Hafnarhótels dags. 31.10.2011 varðandi hótelbyggingu við Ægisgarð. Minnisblað hafnarstjóra dags. 4.11.2011 um feril mála varðandi Hafnarhótelið ehf.
Hafnarstjóra falið að senda bréfritara samantekt um feril málsins og ítreka þá fyrirvara sem hafa verið á málinu af hálfu Faxaflóahafna sf.
 
6.    Bréf Skipulagsstofnunar dags. 25.10.2011 um Landsskipulagsstefnu 2012-2024.
Lagt fram.
 
7.    Bréf LOCAL lögmanna ehf. f.h. Slippsins fasteignafélags ehf., dags. 2.11.2011 varðandi beiðni um leigu á lóðinni Mýrargötu 10-12 undir rekstur hótels Marinu.
Um þessar mundir er unnið að endurskoðun á deiliskipulagi á Mýrargötu- og slippareit. Því er ekki unnt að verða við erindi bréfritara um leigu lóðar­innar Mýrargata 10 og 12. Ákvörðun um úthlutun lóðarinnar verður tekin þegar breytt deiliskipulag liggur fyrir.
 
8.    Lánamál – endurfjármögnun lána.
Hafnarstjóri gerði grein fyrir málinu.
 
9.    Greinargerð Vesturflugs ehf. dags. 24.11.2011 og erindi um afnot af lóð undir þyrlupall við Skarfabakka ásamt minnisblaði skipulagsfulltrúa Faxaflóahafna sf..
Samþykkt að taka málið fyrir að nýju á næsta fundi þegar frekari upplýs­ingar liggja fyrir.
 
10.Minnisatriði hafnarstjóra frá Málþingi Faxaflóahafna sf. með notendum þann 2. nóvember s.l.
Lagðir fram.
 
11.Forkaupsréttarmál:
a.    Erindi Hólabrautar ehf., dags. ódags. varðandi beiðni um að fallið verði frá forkaupsrétti á Fiskislóð 45 fastanr. 228-4609 og 228-4616. Seljandi Hólabraut ehf., kt. 450310-1580. Kaupandi Freyja Gylfadóttir., kt. 310767-5149.
b.    Erindi Ásbyrgis fasteignasölu ehf., dags 4.11.211 um að fallið verði frá forkaupsrétti á Fiskislóð 45 fastanr. 229-6860. Seljandi Landsbankinn hf., kt. 471008-0280. Kaupandi Margrét Snorradóttir., kt. 221061-3309.
c.    Erindi Ásbyrgis fasteignasölu ehf., dags. 4.11.2011 varðandi beiðni um að fallið verði frá forkaupsrétti á Fiskislóð 45 fastanr. 229-6861. Seljandi Landsbankinn hf., kt. 471008-0280. Kaupandi Kristín Lára Ólafsdóttir., kt. 100873-5409.
d. Afsal Þrotabús Skúlagötu 30 ehf., kt. 600269-1359 og Þrotabús Dreifingar ehf., kt. 490287-1599 til Reginn A1 ehf., kt. 521009-1010 dags. 3.11.2011 vegna Brúarvogs 1-3.
Hafnarstjórn staðfestir afgreiðslu hafnarstjóra um að fallið sé frá forkaups­rétti ofnagreindra eigna með venjulegum fyrirvara um að lóðarnýting sé í samræmi við lóðarleigusamning og starfsemin í samræmi við ákvæði deili­skipulags.
 
12.Önnur mál.
Árleg tendrun á jólatré frá Hamborg verður laugardaginn 26. nóvember n.k.
 
Fleira ekki gert,
fundi slitið kl.10:45