Tól



Veður

Gamla höfnin | Kleppsbakki | Akranes | Grundartangi

Hitastig
Vindur
Hviða
Sjávarhæð
Loftvog
Nánar
19.06 20:20





Fundir 2006

26. fundur

Ár 2006, miðvikudaginn 2. ágúst kom stjórn Faxaflóahafna sf. saman til fundar í fundarherbergi hafnarstjórnar og hófst fundurinn kl. 12:00.
Mættir:
Björn Ingi Hrafnsson
Kjartan Magnússon,
Ólafur R. Jónsson,
Árni Þór Sigurðsson,
Sæmundur Víglundsson,
Hallfreður Vilhjálmsson,
Páll Brynjarsson.
Varafulltrúi:
Stefán Jóhann Stefánsson.
Áheyrnarfulltrúar: Sveinn Kristinsson, Jón Sigurðsson.
Auk þess sátur fundinn: Gísli Gíslason hafnarstjóri, sem jafnframt ritar fundargerð, Vignir Albertsson skipulagsfulltrúi, Jón Þorvaldsson forstöðumaður tæknideildar.
Formaður setti fund og bauð fundarmenn velkomna á þennan fyrsta fund nýkjörinnar stjórnar.
 
1. Kjör varaformanns.
Formaður tilnefndi Kjartan Magnússon sem varaformann og var það samþykkt.
2. Minnisblað hafnarstjóra dags. 19. júlí 2006 varðandi ýmis verkefni á vegum Faxaflóahafna sf.
Lagt fram. Hafnarstjóri gerði grein fyrir helstu verkefnum sem unnið er að.
3. Rekstraryfirlit.
Lagt fram. Hafnarstjóri greindi frá stöðu mála og gerði að tillögu sinni að fjármunum sem áætlaðir voru til aðstöðusköpunar fyrir lóðsbát á Grundartanga verði varið til yfirborðsfrágangs við höfnina, en að framkvæmdum við lóðsbátaaðstöðuna verði frestað til næsta árs. Hafnarstjórn samþykkir tillöguna.
Hafnarstjóri mun á næsta fundi stjórnar leggja fram tillögur um formlegar breytingar á fjárhagsáætlun ársins.
4. Bréf Reykjavíkurborgar dags. 14. júlí 2006 varðandi tilnefningu í samráðshóp um lagningu Sundabrautar.
Samþykkt að formaður hafnarstjórnar, Björn Ingi Hrafnsson, taki sæti í samráðshópnum.
5. Forkaupsréttarmál.
a. Bréf Lögborgar dags. 13. júní 2006 þar sem óskað er eftir að fallið verði frá forkaupsrétti vegna Fiskislóð 16. Seljandi: R. Sigmundsson ehf., Kaupandi: Hafrafell ehf.
b. Bréf Húsakaupa dags. 12. júlí 2006 þar sem óskað er eftir að fallið verði frá forkaupsrétti vegna Grandagarðs 5. Seljandi: Miðlun ehf., Kaupandi: Arnar Tómasson.
c. Kaupsamningur og afsal v. Eyjarslóð 7, seljandi Skeljungur hf, kaupandi Nordic partners ehf.
Lögð fram. Hafnarstjórn fellur frá forkaupsrétti vegna Eyjaslóðar 7 með venjulegum fyrirvara um að nýting sé í samræmi við skilmála lóðarleigusamnings. Hafnarstjóri hefur þegar afgreitt önnur erindi samkvæmt heimild þar að lútandi.
6. Bréf Hringrásar ehf., dags. 23. júní 2006 varðandi umsókn um úthlutun lóðar að Klettagörðum til stækkunar á vinnslusvæði.
Umræddri lóð hefur þegar verið úthlutað og er því ekki unnt að verða við umsókn fyrirtækisins. Hafnarstjóri gerði grein fyrir viðræðum sínum við fulltrúa fyrirtækisins og er honum falið að ræða við fulltrúa fyrirtækisins.
7. Bréf Klettaskjóls ehf., dags. 29 maí 2006 varðandi sameiningu lóðar 3-5 við Klettagarða og viðbyggingu.
Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að afla frekari upplýsinga um málið.
8. Bréf Spangar ehf., dags 10. júlí 2006 varðandi umsókn um lóðir og byggingarétt á svæði Mýrargata, slippsvæði.
Vinna við deiliskipulag Mýrargötusvæðis stendur nú yfir og framkvæmdir við hreinsun svæðisins eru að hluta til farnar af stað. Þegar hafnarstjórn telur tímabært verður tekin ákvörðun um með hvaða hætti staðið skuli að úthlutun byggingarlóða. Því er ekki unnt að verða við umsókn um úthlutun lóða þar nú.
9. Bréf Fiskkaupa hf., dags. 29.06.2006 varðandi umsókn um lóð nr. 34 við Fiskislóð.
Hafnarstjórn samþykkir að veita fyrirtækinu vilyrði fyrir umræddri lóð og felur hafnarstjóra að ræða við fulltrúa þess um framgang málsins og gerð lóðarsamnings.
10. Umsóknir um lóðir í Vesturhöfn.
a. Bréf Nordic Partners ehf., dags. 20.júní 2006.
b. Bréf Tölvulistans & IOD dags. 20. júní 2006.
c. Bréf Pharma ehf., dags. 28. júní 2006.
d. Bréf Vogue dags. 03. júlí 2006.
e. Bréf Viðskiptahússins dags. 05. júlí 2006.
f. Bréf Exton ehf., dags. 06. júlí 2006.
g. Bréf Framkvæmdasviðs Reykjavíkurborgar dags. 07. júlí 2006.
h. Bréf Kvikk ehf., dags. 17. maí 2006. (tekið fyrir 30. maí 2006)
i. Bréf Eignamiðjunnar ehf., dags 17. maí 2006
Umsókninrnar lagðar fram til kynningar. Hafnarstjórn samþykkir að taka málið til afgreiðslu á næsta fundi stjórnar. Hafnarstjórn samþykkir að fela hafnarstjóra að ræða við framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar um mögulegt samstarf um aðstöðu fyrir hverfastöð.
11. Bréf Jeppaklúbbs Reykjavíkur dags. 18. júlí 2006 varðandi ósk um aðstöðu vegna æfinga og akstursbrautar fyrir unga ökumenn.
Hafnarstjórn samþykkir að óska eftir umsögn skipulagsráðs Reykjavíkurborgar og æskulýðsráðs um erindið.
12. Bréf frá Remedia ehf., dags. 20. júní 2006 varðandi útflutning á vatni með tankskipum.
Lagt fram. Hafnarstjóri gerði grein fyrir málinu.
13. Bréf Hollvinasamtaka Englendingavíkur dags. 03. júlí 2006 varðandi styrk.
Lagt fram. Páll Brynjarsson færði höfninni þakkir fyrir þann stryk sem veittur var til verkefnsins.
14. Dómur héraðsdóms Reykjavíkur 6. júlí 2006. Sigurður Ólafsson gegn FFH og VÍS.
Lagður fram. Hafnarstjóra falið að ræða við fulltrúa VÍS um framhald málsins.
15. Bréf starfsmannafélagi Faxaflóahafna vegna kosningu áheyrnarfulltrúa starfsmanna og varamanns hans.
Lagt fram.
16. Önnur mál.
Hafnarstjóri gerði grein fyrir því að Jón Þorvaldssson, forstöðumaður tæknideildar, hefði verið tilnefndur í nefnd sem vinni áhættumat vegna staðsetningar olíubirgðarstöðvar.
Formaður greindi frá ársfundi AIVP, sem haldinn verður í nóvember og Hafnasambandsþingi sem haldið verður á Höfn Hornafirði í október n.k.
Þá var rætt um tímasetningu á skoðunarferð hafnarstjórnar um hafnasvæði Faxaflóahafna sf.
Hallfreður fjallaði um skipulagsmál í Hvalfjarðarsveit og óskaði eftir að teknar yrðu upp viðræður um þau mál. Stjórnin samþykkir að svo verði gert.
Rætt um útblástur frá Íslenska Járnblendifélaginu hf. á Grundartanga og er hafnarstjóra falið að ræða við fulltrúa fyrirtækisins um úrbætur í þeim málum.
 
 
 
Fleira ekki gert,
fundi slitið kl. 13:30