Í samræmi við samning á milli Þórshafnar í Færeyjum og Reykjavíkurborgar heimsótti kútterinn Westward Ho Hátíð hafsins í ár. Í áhöfn voru 8 Íslendingar og 8 Færeyingar báðar leiðir og tóku Færeyingar þátt í hátíðinni með dans og söng.
Við komu Westward Ho til Þórshafnar 9. júní tóku Faxaflóahafnir sf., þátt í Menningarnótt þeirra Þórshafnarbúa með því að gefa gestum og gangandi síld og grillað lamb en KK, Kristján Kristjánsson, skemmti gestum á sinn einstaka hátt.
Í sérstakri móttöku sem Faxaflóahafnir sf., buðu til var undirrituð viljayfirlýsing um stofnun Færeysks-íslensks viðskitptaráðs. Það voru þau Marita Rasmussen, framkvæmdastjóri samtaka Færeyskra vinnuveitanda og Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna sf. sem undirrituðu viljayfirlýsinguna en ákveðið er að stofna viðskiptaráðið formlega í haust kemur.
Í upphafi var reiknað með að Westward Ho kæmi til Þórshafnar kl. 16:00 á föstudag en vegna mikils mótvinds og óhagstæðra skilyrða kom kútterinn ekki fyrr en kl. 22:00 á laugardagskvöld við mikinn fögnuð Þórshafnarbúa.