Föstudaginn 30. mars gerðu Faxaflóahafnir sf. og ÍAV hf. verksamning vegna verksins Skarfabakki 2. áfangi.
Framkvæmdir hófust um miðjan mars. Verktaki hefur gert bráðabirgðaveg sem verður notaður á meðan framkvæmdir standa yfir.
Unnið er við að fjarlægja gamla garðinn - Ábótann - og grjótvörn.
Efni úr Ábótanum er lagerað á Klettasvæðinu og stærsti hluti grjótvarnar er flutt á svæðið utan Klepps.
Áætlað er að hefja vinnu við dýpkun og gröft efnisskiptaskurðar um miðjan apríl.
Áætluð verklok eru 1. nóvember 2013.